
Núna er verið að vinna í nýju lagareldisfrumvarpi sem fer fljótlega til umfjöllunar á Alþingi.
Ef samþykkt verða nægilega ströng lög gæti það orðið eitt stærsta skref í sögu náttúruverndar og verndar lífríkis á Íslandi. En til þess þurfa löggjafarnir að vita hver vilji fólksins er, bæði á Íslandi og um allan heim. Bættu rödd þinni við:
" Ég ásamt meirihluta Íslendinga og fjölda fólks um allan heim krefst þess að skaðlegu fiskeldi í opnum sjókvíum verði hætt tafarlaust."
UPPFÆRT: Lagareldisfrumvarpið sem vísað var til þegar þessi áskorun var fyrst sett af stað árið 2023 hefur enn ekki verið samþykkt á Alþingi og nýjasta útgáfan er enn til umræðu. Kröfur okkar eru óbreyttar: að binda enda á skaðlegt fiskeldi í opnum sjókvíum. Á árunum 2023/24 skrifuðu nær 60.000 manns undir þessa áskorun, sem átti sinn þátt í að ekki var hægt að samþykkja frumvarp sem verndaði náttúruna ekki nægilega. Í dag (2026) stöndum við aftur á sömu krossgötum en nú gætu afleiðingarnar verið enn alvarlegri. Rödd þín er mikilvægari en nokkru sinni fyrr.